Sérferð fyrir eldri borgara
27. júní til 1. júlí 2022
Ferðatilhögun
27. júní: Flogið með Atlantic Airways frá Keflavík kl. 10.20 og lent á flugvellinum í Vogey í Færeyjum kl. 12.45 að staðartíma. Flogið er með nýlegum og þægilegum þotum af gerðinni Airbus A321 sem skila farþegum upp að nýlegri og gæsilegri flugstöð í Vaagar. Um kl. 13.30 er lagt af stað í stutta skoðunarferð til Gásadals þar sem er fámennasta byggðin í Færeyjum með aðeins 15 manns. Á leiðinni til baka er ekið í gegnum Sørvág og Sandvág og áætluð koma til Þórshafnar er um kl. 15.30. Innritun á Hotel Brandan skömmu síðar þar sem gist verður í 4 nætur. Hótelið er glænýtt 4* hótel í Þórshöfn. Kvöldverður á hótelinu kl. 19.00 (18.00) en tímamismunur á Íslandi og Færeyjum er +1 klst.
28. júní: Kl. 10.00 er lagt af stað frá hóteli og ekið áleiðis til Klaksvíkur sem er næst fjölmennasti bær í Færeyjum. Hádegissnarl á eigin vegum eftir heimsókn í Christians kirkjuna í Klaksvík. Eftir það er ekið til baka um Austurey og á leiðinni er komið við í Fuglafirði. Á leið til Klaksvíkur verður ekið í gegnum nýju göngin til Rúnavíkur sem opnuðu á síðasta ári en í bakaleiðinni verður ekið gömlu leiðina og þannig einskonar hringferð um þessar fallegu eyjar sem eykur á ánægju farþega. Áætluð koma til baka á hótel kl 16.00. Kvöldverður á hótelinu kl. 19.00.
29. júní: Frjáls dagur til að skoða sig um í Þórshöfn, miðbæinn, verslunarmiðstöðina SMS og höfnina en þar er jafnan mikið líf. Kl. 15.00 safnast hópurinn saman við höfnina og fer ásamt fararstjóra í gönguferð um Tinganes, helsta sögustað Þórshafnar þar sem rikisstjórn Færeyja hefur m.a. aðsetur. Eftir göngutúrinn er hægt að fá sér kaffi á kaffihúsi eða kvöldverð á þeim fjölmörgu veitingastöðum sem í boði eru í Þórshöfn.
30. júní: Lagt af stað kl. 11.00 og þá verður ekið til Kirkjubæjar sem er sögustaður Færeyinga líkt og Þiingvellir okkar Íslendinga. Þar verða rústir krikjunnar sem er frá miðöldum skoðaðar og önnur hús á staðnum. Einnig verður boðið uppá hádegisverð í Kirkjubæ hjá þeim Jóannesi Paturssyni og Guðríði konu hans. Hús þeirra er elsta timburhús sem búið er í, í Evrópu og á sér sögu frá 18. öld. Á leiðinni að Kirkjubæ verður stoppað stuttlega í Norðurlandahúsinu og einnig ekið um Þórshöfn þar og stoppað á stöðum þar sem gott útsýni er yfir bæinn. Síðan ekið til baka með viðkomu í Norðurlandahúsinu þar sem hægt verður að fá sér hádegissnarl eða kaffiveitingar. Eftir það verður ekið um Þórshöfn og stoppað á útsýnisstöðum en ferðinni lýkur um kl. 15.30. Kvöldverður kl. 19 á hótelinu.
1. júlí: Lagt af stað frá hóteli kl. 08.45 á flugvöllinn. Innritun í flug Atlantic Airways með brottför kl. 10.45 og lent í Keflavík kl. 11.15.
Verð: kr. 199.900 á mann
Auka gjald fyrir einsmanns herbergi kr. 39.500.
Innifalið: Flug og flugvallarskattar, gisting á Hotel Brandan 4* í 4 nætur m/morgunverði og 2ja rétta kvöldverði öll kvöld ásamt íslenskri fararstjórn og leiðsögn. Allur rútuakstur í skoðunaerferðir auk aksturs til og frá flugvelli við Vaagar. Hádegisverður í Kirkjubæ og aðgangur að Christianskirkjunni í Klaksvík. Aukagjald vegna gistingar í eins manns herbergi er kr. 39.500.
Skráning í ferðina fer fram með því að smella á hnappinn hér að neðan eða senda okkur tölvupóst með nafni, síma og kennitölu. Einnig er hægt að hafa samband við Ferðaskrifstofu eldri borgara í símum 783-9300 og 783-9301. Öllum fyrirspurnum um ferðina er svarað samdægurs.
Við skráningu þarf að greiða 50.000 staðfestingargjald – sjá skilmála okkar hér. Innleggsreikningur er: 0586-26-6855, kt. 590110-1750. Vinsamlegast sendið greiðslustaðfestingar á netfangið hotel@hotelbokanir.is Eftirstöðvar, kr. 149.000 þarf að gera upp 45 dögum fyrir brottför. Hægt er að greiða með peningum eða kreditkorti.
Akstursleiðir í skoðunarferðum okkar í Færeyjum.