fbpx

Aðventuferðir eldri borgara til Kaupmannahafnar

Aukaferð 12. til 15. desember 2021

Aðventuferðir eldri borgara til Kaupmannahafnar hafa verið geysi vinsælar og undanfarin ár hefur verið uppselt í allar ferðirnar sem í boði voru. Ferðirnar eru frá sunnudagsmorgni til miðvikudagskvölds og brottfarir verða 21. nóvember, 28. nóvember og 5. desember og nú aukaferð 12. desember. Dvalið er á hinu glæsilega hóteli Skt. Petri (Nánar um hótelið) í miðborg Kaupmannahafnar þaðan sem stutt er á Strikið, í verlsanir eða á veitingastaði.

Dagskrá ferðanna er tekur mið af þörfum eldra fólks og er bæði menningarleg, fræðandi og skemmtileg. Farið er í gönguferð um gamla bæinn undir íslenskri leiðsögn og einnig er heimsókn í Jónshús þar sem staðarhaldari tekur á móti hópnum og fræðir um sögu þessa merka húss. Þá er farið í skemmtisiglingu á lokadegi þar sem jazzbandið Scandinavian Rythmboys leikur skemmtilega tónlist meðan siglt er um síkin og borgin skoðuð frá öðru sjónarhorni. Boðið er uppá kvöldverð á komudegi þar sem ekta danskur matur er í boði og einnig á lokakvöldi þegar snæddur er „julefrokost“ á veitingastaðnum Grøften í Tivoli.

Scandinavian Rythmboys

Hópar eru upp að 45 manns hverju sinni undir öruggri fararstjórn Sigurður K. Kolbeinssonar sem annast hefur fararstjórn mjög víða fyrir hópa eldri borgara.  Aðventuferðir hafa verið farnar í tæp 20 ár og oftast selst upp.  Hafðu samband með því að smella hér og senda okkur tölvupóst með fyrirspurn.

Verð kr. 159.500 á mann *

Staðfestingargjald er kr. 50.000.
Greiða þarf stafestingargjald innan 5 daga frá staðfestingu pöntunar.

Innifalið í verði:

  • Flug með Icelandair ásamt flugvallarsköttum og bókunargjaldi
  • Allar rútuferðir til og frá hóteli og innan Kaupmannahafnar
  • Gisting á Hotel Skt. Petri í 3 nætur ásamt morgunverði
  • Skoðunarferð um gamla bæinn og heimsókn í Jónshús
  • Kvöldverðir á komudegi (einn drykkur innifalinn) og lokakvöldi
  • Sigling um síkin á lokadegi
  • Íslensk fararstjórn
  • Aukagjald fyrir gistingu í einbýli: 29.500 kr.

Skráning í ferðina fer fram með því að smella á hnappinn hér að neðan eða senda okkur tölvupóst með nafni, síma og kennitölu. Einnig er hægt að hafa samband við Ferðaskrifstofu eldri borgara í símum 783-9300 og 783-9301.  Öllum fyrirspurnum um ferðina er svarað samdægurs.

Við skráningu þarf að greiða 50.000 staðfestingargjald – sjá skilmála okkar hér.  Innleggsreikningur er: 0586-26-6855, kt. 590110-1750. Vinsamlegast sendið greiðslustaðfestingar á netfangið hotel@hotelbokanir.is  Eftirstöðvar, kr. 149.000 þarf að gera upp 45 dögum fyrir brottför.  Hægt er að greiða með peningum eða kreditkorti.